
Stafræn fjárbók
Einföld stafræn fjárbók fyrir íslensk sauðfjárbú. Hún notar Google innskráningu, vistar í Google Sheets og virkar vel í síma í fjárhúsinu.
Hvað er í boði
Fjárbók er hönnuð með sauðfjárbú í huga, frá skráningu gripa til sauðburðar og heilsumerkinga.
Gögnin vistast í Google Sheets skjali sem þú átt og getur opnað hvenær sem er.
Hraður skjár fyrir fjárhúsið. Merktu ær sem byrjaðar að bera og skráðu sónar og lömb með örfáum smellum.
Mæður, feður, gjafar, systkini og fósturmæður tengjast sjálfkrafa og birtast á gripaspjöldum.
Finndu gripi eftir númeri, nafni, stöðu eða upplýsingum sem vantar í skráninguna.
Riðuflögg, þokugen, myndir og athugasemdir eru á einum stað á hverju gripaspjaldi.
Bjóddu öðrum inn sem ritstjórum eða lesendum. Þú stjórnar hvaða Google Sheets skjöl eru opnuð.
Um Fjárbók
Fjárbók varð til úr eigin þörf — einföld og gagnleg skráning án þess að þurfa að borga eða læra flókin kerfi. Hönnuð fyrir öll sauðfjárbú, stór sem smá.
Fjárbók er ókeypis í notkun og verður það áfram. Engin áskrift, engin falin gjöld, bara góð verkfæri fyrir alla sem þurfa á þeim að halda.
Stuðningur við áframhaldandi þróun er algerlega valfrjáls, en mjög vel þeginn. Skráðu þig inn og sendu okkur skilaboð í spjallinu.
Engin uppsetning, engar mánaðargreiðslur. Skráðu þig inn með Google og byrjaðu.